11. júlí 2008
Kaffi Kvika
Nú eiga gestir okkar kost á því að gæða sér á léttum réttum í nýrri og glæsilegri viðbyggingu sem reist var nú í vetur, já eða á skjólgóðri verönd með útsýni yfir baðlónið og Mývatn sjálft.
Á boðstólnum eru bæði súpa og réttur dagsins, nýbakað brauð, gómsætur og fjölbreyttur salatbar, nýsmurð rúnstykki og taðreyktur silungur úr Mývatni eða norðlenskt hangikjöt á hverabrauði.
Allan daginn er hægt að fá heita drykki og bakkelsi, og þar að auki bjóðum við upp á léttvín og bjór.
Kaffi Kvika hefur farið vel af stað og er kærkomin viðbót við flóruna í Mývatnssveit, en gestir okkar hafa verið einstaklega ánægðir með að geta sest niður við drykk eða mat að afslappandi baðferð lokinni, og notið veðurblíðunnar og einstaks útsýnis sem staðsetning baðlónsins hefur upp að bjóða.
Við viljum bjóða Mývetninga, nærsveitunga og Íslendinga alla sérstaklega velkomna til okkar að njóta hinnar einstöku náttúrufegurðar og veðurblíðu sem yfirleitt ríkir í jarðböðunum.
Til baka
|