Þegar halda skal í Jarðböðin við Mývatn er ekið sem leið liggur frá Reykjahlíð eftir þjóðvegi 1 um þrjá kílómetra í átt að Námaskarði. Þar er tekinn afleggjari til hægri við Jarðbaðshóla og ekið að baðsvæðinu þaðan sem víðsýnt er um hina rómuðu Mývatnssveit.
