Í baðlónin rennur borholuvökvi úr borholu Landsvirkjunar í Bjarnarflagi. Vatnið er um 130 stiga heitt þegar það kemur á staðinn og er meðhöndlað í svokölluðum varmaskipti áður en því er dælt hæfilega heitu í lónin. Vatnið er flutt með hjálp gufuþrýstings í lónið með niðurgrafinni lögn um 1 km leið en fyrst er því dælt inn í mikið og stórt ker sem er við hlið lónanna og er þar kominn nýr, manngerður og mikill hver!
Samtals eru um 3,5 milljónir lítra af vatni í lónunum tveimur, þ.e. baðlóninu sjálfu og svokölluðu öryggis- og affallslóni.
Hitastig er að jafnaði 36-40 gráður C.
Lónin eru tilbúin mannvirki með þéttum sandi og malarbotni.
Eiginleikar vatnsins eru um margt mjög sérstakir, það inniheldur mikið magn jarðefna, er basískt og hentar því vel til böðunar.
Vegna efnainnihaldsins þrífast óæskilegar bakteríur og gróður ekki í lóninu, þannig að ekki þarf að blanda klór eða öðrum sótthreinsiefnum í vatnið.