Mývetningar hafa notið þess að stunda heit jarðböð sér til heilsubótar allt frá landnámsöld enda eru náttúrugæði sveitarinnar einstök. Hiti er í jörð, heitar uppsprettur eru í gjám og hvergi annars staðar á Íslandi stígur hrein vatnsgufa, laus við brennistein og aðra mengun, upp úr jörðinni.
Margar fornminjar og sagnir eru til um skýli til gufubaða sem hafa verið reist í Jarðbaðshólum og nágrenni. Árið 1940 var byggt yfir gufuholu, sem Guðmundur biskup góði vígði snemma á þrettándu öld og notuð hefur verið öldum saman til gufubaða (þurrabaða).
Um 1950 var byggt baðhús í Jarðbaðshólum sem var í notkun fram undir 1970.
Jarðböðin hafa notið mikilla vinsælda hjá ferðamönnum í gegnum tíðina.
Árið 1996 ákváðu Pétur Snæbjörnsson og Jóhann Friðrik Kristjánsson að að endurvekja þessi böð, koma upp gufubaði með gamla laginu og varðveita þannig menningu og sögu Mývatnssveitar. Gufubaðskofa var komið fyrir sunnan Jarðbaðshóla í lok ágúst það ár. Gufubaðið varð strax vinsælt sem heilsubótarbað og samkomustaður og hugmyndin um fullkomna baðaðstöðu sem mundi gjörbylta ferðaþjónustu í Mývatnssveit hélt áfram að þróast.
Árið 1998 var stofnað hlutafélag, Baðfélag Mývatnssveitar ehf., hugmyndinni var hrint í framkvæmd og þann 30. júní 2004 voru gestir boðnir velkomnir í nýja og glæsilega baðaðstöðu í Mývatnssveit “Jarðböðin við Mývatn” .
Eigendur eru um 100 talsins. Ríkisvaldið á stóran hluta í félaginu en við sölu Kísiliðjunnar við Mývatn á sínum tíma ákváðu stjórnvöld að hluta söluandvirðis yrði varið til frekari atvinnuuppbyggingar við Mývatn. Aðrir kjölfestufjárfestar í verkefninu eru Byggðastofnun, Tækifæri og Landsvirkjun en aðrir eigendur félagsins eru fyrirtæki og einstaklingar í Mývatnssveit og nágrenni. Að auki styður Landsvirkjun verkefnið með því að leggja til heitt skiljuvatn frá gufuveitunni í
Bjarnarflagi.
Baðfélag Mývatnssveitar leggur áherslu á að mannvirki fyrirtækisins falli vel að einstakri náttúru sveitarinnar. Það er haft að leiðarljósi að viðhalda náttúrulegu umhverfi baðstaðarins, vernda umhverfið og nota umhverfisvænar vörur.
Áhersla er lögð á að starfsfólk þekki umhverfið og geti veitt haldgóðar upplýsingar um svæðið.
Jarðböðin við Mývatn voru opnuð 30.júní 2004. Við þökkum frábærar móttökur.
Á árinu 2006 komu 62.500 gestir í Jarðböðin.
Jarðböðin eru opin allt árið, við tökum vel á móti öllum sem vilja slaka á í heitu lóninu, baða sig í náttúrulegri gufunni og njóta einstakrar náttúrufegurðar sveitarinnar.
Baðlón með hveravatni (5000m2)
Náttúruleg gufuböð
Heitir pottar
Búningsaðstaða
Snyrtingar
Veitingar
Verslun