• Um böðin
  • Opnunartímar
  • Verðskrá
  • Tilboð
  • Fréttir
  • Veitingar
  • Önnur þjónusta
  • Hvar erum við
  • Hafa samband
  • Mývatn
  • Myndir
  • Póstkort
Veitingar 
English German

Nú eiga gestir okkar kost á því að gæða sér á dýrindis réttum í nýrri og glæsilegri viðbyggingu sem reist var nú í vetur, já eða á skjólgóðri verönd með útsýni yfir baðlónið og Mývatn sjálft. 

Á boðstólnum eru bæði súpa og réttur dagsins, nýbakað brauð, gómsætur og fjölbreyttur salatbar, nýsmurð rúnstykki og taðreyktur silungur úr Mývatni eða norðlenskt hangikjöt á hverabrauði.

Allan daginn er hægt að fá heita drykki og bakkelsi, og þar að auki bjóðum við upp á léttvín og bjór.

Kaffi Kvika hefur farið vel af stað og er kærkomin viðbót við flóruna í Mývatnssveit, en gestir okkar hafa verið einstaklega ánægðir með að geta sest niður við drykk eða mat að afslappandi baðferð lokinni, og notið veðurblíðunnar og einstaks útsýnis sem staðsetning baðlónsins hefur upp  að bjóða.

Við viljum bjóða Mývetninga, nærsveitunga og Íslendinga alla sérstaklega velkomna til okkar að njóta hinnar einstöku náttúrufegurðar og veðurblíðu sem yfirleitt ríkir í jarðböðunum.

Jarðböðin við Mývatn | Jarðbaðshólar | 660 Mývatn
Sími: 464-4411 | Fax: 464-4422 | info@jardbodin.is
Könnun

Hefur þú komið í Jarðböðin við Mývatn?

Já, ég á árskort
Já
Nei
Einu sinni
Já, ég á þriggja mánaða kort

Kjósa

Gengisbreytir
  ISK   
  GBP   
  USD   
  CAD   
  DKK   
  NOK   
  SEK   
  CHF   
  JPY   
  EUR   
  XDR