Banner

Mývatnssveit

Mývatnssveit er þekkt fyrir einstaka náttúrufegurð og fjölskrúðugt fuglalíf. Eldsumbrot hafa mótað landslagið frá örófi alda, þar er hiti í jörðu, heitir hverir, gufa og uppsprettur sem heimamenn og gestir hafa baðað sig í frá landnámsöld. Sveitin er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Í boði er fjölbreytt þjónusta í gistingu, mat og afþreyingu hvort sem er að sumri eða vetri, enda er sveitin ekki síður falleg á veturna. Mývatn er í 277 m. hæð y.s. og er fjórða stærsta vatn landsins, 36,5 km2. Hólmar og eyjur eru um 50 talsins og mesta dýpi aðeins um 5 metrar. Vatnið dregur nafn sitt af aragrúa af mýflugum sem þar eru, bitmýi og rykmýi sem er stór hluti af fæðu silunga og ýmissa fugla.

Fuglalífið er fjölskrúðugt, talið er að hvergi í heiminum séu fleiri andategundir. Húsöndin verpir hvergi annars staðar í Evrópu og þéttasta straumandabyggð jarðar er við ofanverða Laxá. Víða eru merktar gönguleiðir og áhugaverðir staðir eru merktir við þjóðveginn, enda er margt að skoða og auðvelt að gleyma sér við plöntu- og fuglaskoðun í undurfagurri náttúrunni. Af stöðum sem allir ættu að skoða má nefna Hverfjall, Dimmuborgir, Grjótagjá, Skútustaðagígana, Höfða, Lofthelli, Leirhnjúk, Kröflu og hverina fyrir austan Námskarð. Íbúar í Skútustaðahreppi í Mývatnssveit eru um 450 talsins, þar af búa rúmlega 200 í þéttbýlinu í Reykjahlíð.

Facebook            Twitter        Vimeo    Facebook       Tripadvisor